Orðasambandið um úlfaldann og nálaraugað á rætur að rekja til Nýja testamentisins. Í samstofna guðsjöllunum Matteusarguðspjalli (19.24), Markúsarguðspjalli (10.25) og Lúkasarguðspjalli (18.25) stendur í biblíuútgáfunni frá 1981:Enn segi ég: Auðveldara er úlfalda að fara í gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn...
Upprunalegu spurningarnar hljóðuðu svona:Eru þekkt dæmi um það að djöfullinn sé til í fólki og hægt sé að særa hann út? (5. R í MR). Eru andsæringar til í alvörunni? Er hægt að sanna það að fólk hafi verið andsett. (Jenný Björk Ragnarsdóttir)
Andsetning (e. possession) kallast það fyrirbæri þegar einstaklingur...
Áður en bók Charles Darwins (1809-1882) Uppruni tegundanna kom út árið 1859 voru flestir Vesturlandabúar á þeirri skoðun að tegundir lífs á jörðinni hefðu orðið til við sköpun. Darwin ber kenningu sína saman við þessa hugmynd allvíða í bókinni. Hana má kalla sköpunarhyggju á íslensku en á ensku er hún oft nefnd cr...
Kjarninn í siðaboðskap kristninnar byggir á boðskap Jesú Krists, eins og hann hefur varðveist í guðspjöllum Nýja testamentisins. Þar leggur Kristur áherslu á mikilvægi þess að elska náungann. Í því sem kallað hefur verið tvöfalda kærleiksboðorðið, tengir Kristur saman afstöðu okkar til Guðs og afstöðu okkar til n...
Kalvínismi eða kalvínstrú er algengt heiti á siðaskiptahreyfingu þeirri sem á rætur að rekja til Jóhannesar Kalvíns (Jean Calvin 1509–1564) og er þar með hliðstæða hugtaksins lútherstrú. Kalvínskar kirkjur eru á erlendum málum gjarna nefndar reformertar (af orðinu reformation sem merkir siðbót) til aðgreiningar fr...
Altarið í kristinni kirkju er fyrst og fremst borð. Það er kallað borð Drottins vegna þess að þar er borin fram kvöldmáltíðin. Að ganga til altaris er þannig líka kallað að ganga til Guðs borðs.
Jafnframt er altarið samkvæmt kristinni trú tákn um nærveru Guðs á jörðu. Þess vegna snúum við okkur þangað þegar vi...
Biblía er grískt orð og þýðir „bækur”. Biblían telur líka margar bækur eða alls 66, og raunar 77 ef apókrýfar-bækur Gamla testamentisins eru taldar með. Þessar bækur eru frá mörgum mismunandi tímum og eru mjög fjölbreyttar að innihaldi. Kristnir menn skipta Biblíunni í tvo hluta, Gamla testamentið annars vegar og ...
Það er trú kristinna manna að Jesús muni koma aftur "til að dæma lifendur og dauða" eins og segir í trúarjátningunni. Það merkir að við trúum því að Guð muni láta vilja sinn með heiminn verða að lokum, láta allar bænirnar í Faðirvorinu rætast. Jesús er sá sem uppfyllti í sínu lífi allan Guðs vilja og gerði það fyr...
Eitt sinn heyrði ég bandarískan tónlistarprófessor svara spurningunni „til hvers er tónlist?“ á þessa leið: „Tónlist er alls staðar, það er ekki einu sinni hægt að selja sápu án hennar.“ Það er heilmikið til í þessu einfalda svari, því að tónlist hefur frá örófi alda verið samofin flestu því sem maðurinn tekur sér...
Hugtökin verund (e. being) og neind (e. nothingness) eru ein og sér svo almenns eðlis að þau koma fyrir með einum og öðrum hætti í vel flestum verkum heimspekisögunnar. Þá tengjast þessi andstæðu hugtök öðrum aldagömlum hugtökum eins og sýnd/reynd, satt/ósatt og rétt/rangt. Nú orðið er talað um sérstaka grein heim...
Trúleysingi er sá sem ekki hefur neina trú í skilningnum „traust og tilbeiðsla á goðmögnum eða vættum; trúarbrögð”. Það að vera trúlaus er sem sagt það að vera laus við trú á guði eða yfirskilvitlegar æðri verur.
Alþjóðaorðið yfir trúleysingja er aþeisti. Forskeytið a- felur í sér neitun og merkir 'ekki' eða 'á...
Það hlýtur að felast í almætti Guðs, að hann geti hætt að vera almáttugur. Svo lengi sem hann nýtir sér ekki þann möguleika, telst hann almáttugur.
Þessari spurningu hefur einnig verið svarað frá heimspekilegu sjónarhorni, sjá svar Eyju Margrétar Brynjarsdóttur....
Á Íslandi er dauðinn gjarnan persónugerður sem maðurinn með ljáinn, og í sálminum ‘Um dauðans óvissan tíma’ líkir Hallgrímur Pétursson dauðanum við slyngan sláttumann. Á ensku heitir hann Grim Reaper eða Scythe-man og á þýsku Sensemann.
Hinn slyngi sláttumaður vitjar deyjandi manns.
Hugmynd okkar á Vesturlö...
Kraftverk, sem nefnast mu’jizãt á arabísku, gegna afar litlu hlutverki í íslamskri guðfræði, ólíkt kraftaverkum í kristinni trú. Íslamstrú afneitar þó ekki kraftaverkum en þau hafa litla sem enga þýðingu.
Fræðimaðurinn al-Ansãri, sem var uppi frá 1006-1089 eftir okkar tímatali, sagði um kraftaverk:Sá sem geng...
Í latnesku biblíuþýðingunni Vulgata, sem er meðal elstu og frægustu biblíuþýðinga, er síðari hluti englasöngsins á jólanóttina samkvæmt Lúkasarguðspjalli (2.14) svona: et in terra pax hominibus bonae voluntatis, sem þýðir orðrétt „og friður á jörðu til handa mönnum góðs vilja.“ Latneska textann hafa menn gjarna sk...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!